Þvílíka gleðivímu man ég ekki eftir að hafa fundið. En ég er
reyndar með mjög skert skammtímaminni. Eftir sem áður var
kærkvöldið svo sannarlega eitthvað sem lengi verður í minnum haft.
Ég er svo stolt af gettu betur liðinu okkar, og skólanum mínum
öllum ef út í það er farið. Við lögðum af stað upp úr hálfeitt(í
stuðrútunni) og styttum okkur stundir í bíómyndaleiknum(í svona tvo
klukkutíma) og yfir byrjuninni á batman forever(við fengum
leifarnar, batman forever og shaft). Við stoppuðum í Kringlunni og
þar hitti ég pabba, Kristínu og Natalíu. Ég kenndi henni að sjúga
úr röri. Eða, hún fattaði það með rörinu mínum, eða eitthvað. Við
mættum á fiskislóð upp úr sjö og hituðum upp með því að öskra úr
okkur röddina. Ég lenti óvart í sætinu fyrir aftan Jón Má og leist
ekki alveg á, en náði að snúa mig út úr því. Svo hófst útsending og
svona klukkutíma seinna vorum við búin að vinna(þeas
strákarnir). Ahh þvílík sæla! Ég var næstum búin að stökkva á
Rektor MR og faðma hann í misgripum(veit ekki í misgripum fyrir
hvern, hann er hávaxinn og gráhærður). Á leiðinni heim horfðum við
á Fuglastríðið. Langt síðan ég sá hana síðast. Gerði mér virkilega
ekki grein fyrir því hversu óheppilegt sjónvarpsefni þetta er
fyrir barn. Til dæmis þetta: "Við hötum þig. Þú ert heimsk og
feit", svo ekki sé talað um allt ástarbrallið. Svo bilaði eitthvað
miðstöðin í rútunni(veit ekki alveg, ég var hálfsofandi), ég
vaknaði hálffrosin við gólfið og sá þann kost vænstan að hjúfra mig
upp að Auði og klæða mig í vettlinga utan yfir ullarsokkana til að
bjarga lífi og limum. Ég komst lifandi heim í rúmið mitt að
lokum og mætti meira að segja í skólann í morgun
og já þetta:
4 störf sem ég hef unnið um
ævina(Þau sem standa uppúr):
- Barnapössun
- Uppvaskari og borðaaftakari
- Bréfberi
- Túristaskemmtari(hef í rauninni
ekki hugmynd um hvað ég vann við sumarið 2004)
4 bíómyndir sem ég gæti horft á
aftur og aftur:
-
Meet Joe Black
-
Pirates of the
Caribbean
-
Bridget Jones, hvor þeirra sem
er.
- Charlie and the chocolate
factory
4 staðir sem ég hef búið
á:
- Kolbeinsgata 14, Vopnafirði
- Lónabraut 3, Vopnafirði
- Lónabraut 35, Vopnafirði
- Akurgerði 5a, Akureyri
4 sjónvarpsþættir sem mér líka:
- The O.C.
- The Simpsons
- Dexter's Laboratory
- Friends
4 síður sem ég skoða daglega
fyrir utan blogg:
- muninn.is
- ma.is?
- ég fer ekki einu sinni
- daglega í tölvuna
4 staðir sem ég hef heimsótt
í fríum:
- Kanaríeyjar '99
- Kaupmannahöfn '04
- Svíþjóð+Finnland '04
- London '06
4 matarkyns sem ég held
uppá:
- Kjúklingur
- Heimagerð pizza með papriku,
sveppum, maís og brokkolí
- Nammiskúffukaka
- Mjólkurgrautur með saft og
rjóma
4 staðir sem ég vildi heldur vera
á núna:
- Uppi í rúmi
- Ítalíu
- Í sundi
- Í ísbúðinni sem mig dreymdi í
nótt
Ég ætla að láta drauma mína rætast
og fara að leggja mig. Sjáumst.